Fyrsti stjórnarfundur fyrir stjórnarárið 2015-2016. Ný stjórn skipa þær.: Ingibjörg Svana Runólfsdóttir Formaður Ingibjörg Valsdóttir Gjaldkeri Ágústa Pétursdóttir Ritari Bryndís Pétursdóttir Margrét Björk Kjartansdóttir
Rætt var um sætaskipan í stjórn og var ákveðið að halda sætaskipan óbreyttri.
Neitum kom frá stjórn HRFÍ um að sýningin okkar yrði gild til meistarastigssýningu.
Næsta ganga deildarinnar s.s maí gangan verður haldinmiðvikudaginn 13.maí n.k og er stefnan tekin á að ganga miðbæinn kl 18 og borða að göngu lokinni.
Stefna á það að halda fjölskylduhátíð í sumar og fara í smá útilegu saman. Athuga með tjaldstæði þar sem má vera með hunda og möguleiki sé á að gista inni líka með hund, best væri að hann væri í hæfilegri fjarlægð frá Reykjavík þannig fólk eigi möguleika á að fara heim yfir nóttina. Á þessum viðburð væri hægt að athuga með loftboltana, grilla saman og jafnvel halda smá ganni sýningu.
Aðalfundur deildarinnar 25.mars skipulagður. Ákveðið hefur verið að gefa eftirfarandi viðurkenningarskjöld:
Stigahæsti hundur deildarinnar fyrst 5 sætin 2014
Stigahæsti hvolpur deildarinnar 2014
Nýliðar ársins
Fyrir bestu mætingu í göngur
Fyrir virkan þátt á síðu deildarinnar
Ljósmynd ársins 2014
Við fengum fyrirtæki til að styrkja okkur og gefa vinning til happadrættis fyrir mætta fundargesti.
Deildarsýning
Stjórnin hefur ákveðið að halda opna sýningu á þessu ári og fengið til þess Am.cocker spaniel ræktanda frá danmörku til að dæma. Boðið verður uppá flokk fyrir uppklippta hunda líka. Þessi sýning er hugsuð til þess að taka út stofninn okkar og meta hvar við stöndum, þar sem margir treysta sér ekki til þess að halda am.cocker í fullum feld og eru því margir hundarnir í stofninum okkar ósýndir.
Stjórnin sótti um frá stjórn HRFÍ að þessi sýning yrði fullgild deildarsýning en ekki opin sýning eins og til stendur, en hvort sem er verður þessi sýning haldin seinni hluta þessa árs.
Enn er beðið úrlaustnar Stjórnar HRFÍ.
Fundi slitið
Stjórnarfundur Am. Cocker Spanieldeildar 14. janúar 2015.
Mættir stjórnarmeðlimir:
Ingibjörg Valsdóttir, Svana Runólfsdóttir, Bryndís Pétursdóttir og
Ágústa Pétursdóttir
Ágústa Pétursdóttir ritar
fundinn
Málefni:
Fyrirlestur um atferli hunda á vegum Olgu
Fyrirlestur sem farið er yfir
atferli hunda, í framhaldi er í boði námskeið og úrlausnir sem hægt er að sækja
síðan í framhaldinu.
Bóka skriftstofu
Auglýsa inná vefnum þegar dagsetning og tími er kominn á hreint
Deildarganga
Hafa næstu göngu í byrjun febrúar 2014.
Verðlaun
Vegna fjölda sýninga höfum
við ákveðið að auglýsa eftir styrkjum við kaup á verðlaunum/bikurum fyrir sýningar eða aðra viðburði, þar sem það
hefur yfirleitt komið í hlut sama aðila getur þetta orðið mjög kostnaðarsamt
þar sem sýningar eru 4 á ári og í ár eru 7 sýningar.
Hugmyndin var að auglýsa
eftir framlögum sem væru sett upp þannig að einn aðili mundi gefa einn bikar eða önnur verðlaun, þau verðlaunin þurfa ekki
að vera í formi bikara. Sem dæmi ef
Ágústa myndi ákveða að styrkja deildina um kaup á bikar fyrir besta hund
tegundar, myndi hún leggja styrkinn inná bók deildarinnar og stjórnin mundi sjá
um kaupin og bikarinn, bikarnir yrðu mektir gefandi, sem væri þá í þessu
tilfelli Ágústa eða jafnvel nafnið á hundinum hennar.
Gefandi getur séð sjálfur um kaupin ef hann óskar, sérstaklega
ef þau eru í formu einhvers annars en bikars.
Allir gefendur yrðu
auglýstir á heimasíðu deildarinnar. Á
hverri sýningu er yfirleitt 2-4 bikara
að ræða (Besta Hund Tegundar 1 & 2 og Besta hvolp eldri og yngri ef það er
skráð í þá flokka).
Hafa sýningarnámskeið þar
sem farið er í allan grunn varðandi tegundina. Námskeiðið yrði skipt niður í tvö skipti, 1. Skipti verði hittingur á skrifstofu HRFÍ og
verður fyrirlestur þar sem við förum útí
afhverju við erum að sýna hundana okkar, hvað það er sem við þurfum að hafa í
huga og hvernig við fáum hundana til að vinna með okkur í oft mjög krefjandi
aðstæðum. Þessi fyrirlestur fer fram án hunda. 2.skiptið hittumst við uppí Gæludýr.is með hundana
okkar og æfum okkur. Þetta er fyrir ALLA
hvort sem þeir eru á leið á sýningu eða ekki, gott að ná sambandi við hundinn og sýna honum
aga. Stefnan hjá stjórninni era ð hafa
sérsýningu þar sem uppklipptir hundar eru sýndir og því frábær að fá smá grunn
og æfingu, það hjálpar fólki að skilja
hvers vegna og hvaða tilgang hvort sem það er að sýna eða bara horfa.
Panta Skrifstofu í vikunni 2-6 febrúar
Gæludýr.is er bókað 7.febrúar
Auglýsa á vefnum
Sérsýning
Sækja um sérsýningu fyrir
næsta ár
Opin sýning
Plana opnasýningu í sumar.
Finna dagsetningu
sem hentar
Fá teymi til að
hjálpa okkur við undirbúning Vinnudagur
Stjórnin þarf að setjast yfir gögn deildarinnar og
raða gögnum, henda og skanna pappíra svo hægt sé að hafa gögninn aðgengilegri.
Skírteini
Gera nýjann link inná heimasíðuna sem yrði tileinkaður
skírteinum sem eigendur geta sent inn t.d. Hlýðnipróf, skapgerðamat og fleira, ekki hvolpa og
grunnnámskeið.
Fundi slitið
Stjórnarfundur Am. Cocker Spanieldeildar 17. september 2014.
Stjórnarfundur Am. Cocker Spanieldeildar var haldinn miðvikudaginn 17.september 2014 og
hófst hann kl. 20:00.
Mættir:
Svana Runólfsdóttir formaður
Ágústa Pétursdóttir ritari,
Bryndís Pétursdóttir,
Ingibjörg Valsdóttir gjaldkeri.
Málefni.
Fundurinn var haldinn til að skipuleggja Bingó deildarinnar.
Ákveðið var að halda Bingó í deildinni til að efla fjárhag svo hægt sé að efla starfið innan þess.
· Svana pantaði Sólheimakot þann 4. oktober n.k. undir viðburðin.
· Skiptum með okkur fyrirtækjum til að að fá vinninga.
· Gjaldið fyrir Bingóspjal kr. 400 og kr. 1.000 ef keypt er þrjú.
· Kaffihlaðborð kr. 500 á mann og frítt fyrir 5 ára og yngri
· Hver kemur með einhvað á kökuhlaðborðið
· Ágústa kemur með djúsvél og djús
· Svana kemur með kaffi, mjólk og sykur
· Ingibjörg nær í Bingó spjöldin
· Auglýsa Bingó inná spjallinu og heimasíðunni
· Gera viðburð ætluðum Bingóinu og setja þau fyrirtæki þar inn sem gefa og styrkja deildina.
Áætlað að halda annan fund fljótlega til að meta stöðuna eftir Bingóið og plana opna sýningu.