Tegundarkynning Amerískur Cocker Spaniel Einkenni: Amerískur cocker spaniel er sterkbyggður hundur með þéttan líkama og í góðum hlutföllum. Þrátt fyrir að vera minnsti veiðihundurinn er hann með dæmigerðar hreyfingar veiðihunds. Hann hefur gott jafnvægi, gangur hans er mjúkur og áreynslulaus og á hann á ná góðri yfirferð á hreyfingu. Ameríski cockerinn tilheyrir hópi sækjandi veiðihunda en í dag er hann aðallega vinsæll fjölskyldu og sýningarhundur. Samt sem áður var hann ræktaðurveiðihundur sem fælir upp bráð og er veiðieðli í tegundinni sterkt. Amerískur cocker spaniel er glaðlyndur og á ekki að sýna nein merki um feimni. Hann er félagslyndur, húsbóndahollur og semur vel við börn. Ameríski cockerinn er yfirvegaður á mjög auðvelt með að fara eftir fyrirmælum og er þar af leiðandi auðvelt að kenna honum alls kyns kúnstir. Silkikenndur feldurinn er eitt helsta einkenni tegundarinnar en feldurinn er stuttur á höfði og baki. Á búk og eyrum er hann silkikenndur og síður og nægur undirfeldur sem veitir vörn.
Uppruni: Amerískur cocker spaniel er uppruninn í Ameríku en hann er beinn afkomandi enska cocker spaniel hundsins. Þegar enski cockerinn var kynntur í Ameríku vildu ræktendur gera á honum litla þróun og þróaðist fíngerðari hundur með þykkan, síðan feld ásamt því að vera með styttra og fíngerðara höfuð. Ameríski cockerinn var viðurkenndur af ameríska hundaræktarfélaginu árið 1946.
Feldhirða: Mikil umhirða er á feld ameríska cockersins ef ætlunin er að halda honum í sýningarástandi. Ráðlegt er vikulegt bað og blástur ásamt því að bursta yfir feldinn reglulega. Ameríski cockerinn er klipptur og þarf hann því klippingu reglulega. Best er að að klippa hann á 4-6 vikna fresti til að halda klippingunni við. Bakið er ekki klipp né rakað heldur er það reytt reglulega. Eyrun á ameríska cockernum eru síð og tiltölulega þung og því þarf að gæta þess að þau séu alltaf þurr að innan því annars getur verið hætta á eyrnabólgu.
Hreyfing: Ameríski cockerinn er sterkbyggður hundur sem nær töluverðum hraða og býr yfir miklu þreki. Hann þarf reglulega hreyfingu en er þó nægjusamur.
Leyfilegir litir: Litir sem eru leyfilegir eru: einlitur, tvílitur, þrílitur eða roan. Í einlitu hundum er leyfilegt ef smá hvítt er í hálsi og bringu en ekki annarsstaðar. Hvítur er ávallt einn af aðallitum tví- og þrílitaðra amerískra cocker spaniel hunda. Stundum eru brúnar (tan) merkingar á feldinum en þá eru brúnir blettir á augabrúnum, kinnum, við afturendann og á einlitum hundum í þófum.
Amerískur cocker spaniel: Ameríski cockerinn hefur í gegnum árin verið mikil ,,tískutegund“ bæði erlendis og hérlendis og eru þónokkuð margir einstaklingar af tegundinni hér á landi. Ameríski cockerinn hefur verið mjög áberandi í sýningarhringjum hér á landi og erlendis og erum við heppin að eiga marga góða fulltúra tegundarinnar hér á landi.