Amerískur Cocker Spaniel: Augnvottorð: Vottorð má ekki vera eldra en 12 mánaða við pörun. Greinist hundur með arfgengt cataract mun hann verða skráður í ræktunarbann. (Gildir frá 01.12.2003). Reglur fyrir Am. Cocker Spaniel. Para ekki tík fyrir tveggja ára aldur nema annað sé tekið fram í reglum sérdeilda varðandi undaneldisdýr í Reglugerð um skráningu í ættbók Hundaræktarfélags Íslands. Láta ekki tík gjóta oftar en fimm sinnum. Ef tík gýtur tvisvar innan 12 mánaða tímabils þarf að hvíla tíkina í a.m.k. í 12 mánuði fyrir næsta got. Tík sem er 7 ára eða eldri skal hvílast a.m.k. 12 mánuði á milli gota. Ef tík er pöruð eftir 7 ára aldur skal fylgja pörunarvottorði vottorð frá dýralækni, sem staðfestir að tíkin hafi verið í líkamlega góðu ástandi fyrir pörun og geti gengið með hvolpa og alið önn fyrir þeim án þess að það komi niður á heilsu hennar. Vottorð dýralæknis má ekki vera eldra en mánaðargamalt við pörun. Para ekki tík sem er orðin 7 ára gömul hafi hún ekki átt hvolpa áður. Aldrei má para tík sem náð hefur 10 ára aldri. Óheimilt er að ættbókarfæra afkvæmi hunds séu eistu hans ekki eðlileg og rétt staðsett (launeistu). Hafi hundur hvorki verið sýndur í ræktunardóm né eigi áður skráð afkvæmi, skal fylgja umsókn um ættbókarfærslu afkvæma hans vottorð dýralæknis um að eistu undaneldishundsins séu eðlileg og rétt staðsett. Eingöngu vottorð sem gefið er út eftir sex mánaða aldur hunds er tekið gilt. ATH. Am. Cocker Spaniel deild mælir aðeins með gotum sem foreldrar hafa farið í ræktunardóm og fengið 1. eða 2. einkun.