Dagsetningar augnskoðanna 2017 Ákveðnar hafa verið fjórar dagsetningar fyrir augnskoðanir árið 2017. Skoðað verður fjórum sinnum í Reykjavík þar af tvisvar í tengslum við sýningar félagsins í Víðidalnum og einu sinni á Akureyri.
Reykjavík - Víðidal, í tengslum við marssýningu HRFÍ 4.-5. mars 2017 Dýralæknir: Jens Kai Knudsen
Reykjavík (Skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15) og Akureyri 18.-20. maí 2017 Dýralæknir: Susanne Mølgaard Kaarsholm
Reykjavík - Víðidal, í tengslum við septembersýningu HRFÍ 16.-17. september 2017 Dýralæknir: Susanne Mølgaard Kaarsholm
Reykjavík - Skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15 9.-11. nóvember 2017 Dýralæknir: Jens Kai Knudsen
Tímapantanir í augnskoðun fara fram á skrifstofu HRFÍ eða í síma 588-5255. Gefa skal upp ættbókarnúmer hunds og ganga frá greiðslu um leið og hundur er skráður.
Síðasti skráningardagur í augnskoðun er 10 dögum fyrir augnskoðun.
Augnskoðun hunda kostar 5.720 fyrir virka félagsmenn. Hundaeigendur, sem ekki eru félagsmenn í HRFÍ, en með hunda í ættbók HRFÍ, geta skráð sig í augnskoðun gegn hærra gjaldi þ.e. kr. 11.440. Hundar virkra félagsmanna ganga fyrir í augnskoðun.
Það er skylda hjá fjölmörgum hundategundum að niðurstaða augnskoðunar liggi fyrir hjá undaneldisdýrum fyrir pörun. Vinsamlegast kynnið ykkur sérreglur ræktundardeilda fyrir „ykkar" hundategund.
Dýralæknirinn augnskoðar hunda með tilliti til arfgengra sjúkdóma sem finnast í fjölmörgum hundategundum.
Úr lögum HRFÍ •Áður en hundur er augnskoðaður, mjaðma- og/eða olnbogamyndaður, skal hann örmerktur (húðflúr). •Auk þess skulu hundar sem taka þátt í viðburðum á vegum félagsins t.d. sýningum, veiði- hlýðni og sporaprófum svo og skapgerðarmati, einnig vera örmerktir (húðflúr). •Þetta ákvæði gildir fyrir alla hunda, óháð fæðingardegi.
Það sem þarf að hafa í huga. Ábending til þeirra sem eru að fara með hund í augnskoðun! Taka skal með sér eldri gögn hafi hundur áður farið í augnskoðun. Augnlæknirinn getur þá séð sögu hundsins og fengið réttari niðurstöðu. Tilvalið er að eiga þessi gögn sem önnur saman í möppu,þá er miklu auðveldara að finna alla pappíra þegar grípa þarf til þeirra. Ávalt skal lesa yfir pappirana áður en farið er af svæðinu að krossað hafi verið í réttu reitina, augnlæknarnir koma erlendis frá og getur reynst erfitt fyrir þá að muna hvern og einn hund sem til þeirra komu ef ekki hefur verið merkt rétt inná . Hundarnir fá augndropa sem gerir það að verkum að þeir eru ljósfælnir og geta þar afleiðindi verið svolitið óöryggir ,tökum tillit til þeirra og höfum gott bil á milli hunda og hundurinn skal ávalt vera í taum. Gangi ykkur vel !