Gæðaeinkunnir Ekki er hægt að skilgreina nákvæmlega þær kröfur sem uppfylla þarf til að hljóta gæðaeinkunnirnar meistaraefni og alþjóðlegt meistarastig (CACIB), eða excellent, very good, good, sufficient og 0.einkunn. Eftirfarandi lýsingu er ætlað að veita dómara og sýnanda almenna leiðsögn um inntak einkunna.
Meistaraefni (Ck) Veita má meistaraefni þeim hundum sem eru framúrskarandi að gæðum, teljast að öllu leyti dæmigerðir að gerð og rétt byggðir með tilliti til ræktunarmarkmiðs, og með lítilvæga ágalla. Athugið, að meistaraefni er hluti af gæðaeinkunn og á ekki að nota sem verðlaun í keppnisdómi. Réttast væri að ákveða hvort hundur fær meistaraefni, strax við gæðadóm. Í framkvæmd er meistaraefni hinsvegar yfirleitt veitt á sama tíma og sætaröðun í hverjum flokki.
Alþjóðlegt meistarastig (CACIB) Hundur sem fengið hefur meistaraefni (Ck) og er yfirburða að gæðum þannig að hann verðskuldi að verða alþjóðlegur meistari.
Excellent Hundurinn er sérlega dæmigerður fyrir hundakynið, sýndur í frábæru líkamlegu formi og í góðu andlegu jafnvægi; stórglæsilegur og af mjög háum heildargæðum. Kostir hans sem fulltrúa hundakynsins eru svo augljósir að óverulegir útlitsgallar draga hann ekki niður. Tilhlýðlegur munur er á tík / rakka.
Very Good Hundurinn er mjög dæmigerður fyrir hundakynið og bygging hans er í góðu jafnvægi. Líkamlegt form er gott. Minniháttar gallar eru þolanlegir, enda kemur enginnþeirra niður á heildarútliti hundsins. Þessa einkunn má einungis veita hundi sem býr yfir háum gæðum.
Good Hundurinn er dæmigerður fyrir hundakynið og sýnilegir gallar hans eru ekki alvarlegir.
Sufficient Hundurinn er dæmigerður fyrir hundakynið, en skortir þó einhverja áskilda eiginleika eða er í lélegu líkamlegu formi.
0 einkunn (Disqualified) Skal gefin hundi sem er ekki dæmigerður fyrir hundakynið, er með galla sem varðar 0.einkunn samkvæmt ræktunarmarkmiði, gerð og bygging hans kemur niður á heilsu eða almennu heilbrigði, er ekki með eðlileg eistu eða er með óásættanlega skapgerð. Sjá einnig sýningarreglur HRFÍ og kaflannum “0 einkunn (Disqualified) og Ekki hægt að dæma (EHD)”.
Athugið að hundur sem er skráður í hvolpaflokk þar sem einungis er keppt um sæti, getur, ef dómara þykir við hæfi, fengið 0 einkunn.
Sjá ennfremur leiðbeiningar í sýningarreglum varðandi skilgreiningar og skiptingar í flokka, rétt til meistarastigs, alþjóðlegs stigs og fleira.
Ekki hægt að dæma Sjá kaflann “0 einkunn og Ekki hægt að dæma”.