UPPRUNI: Bandaríki Norður Ameríku USA ÚTGÁFUDAGSETNING GILDANDI STAÐALS: 17.05.1993.
NOTKUN: Fælu hundur, fælir upp bráð, félagi.
FLOKKUN F.C.I.: Tegundahópur 8 Sækjandi hundar, hundar sem reka upp bráð, Vatna hundar.
ALMENNT ÚTLIT: Ameríski Cocker Spanielinn er minnsti meðlimur Veiðihundaflokks. Hann er með sterkbyggðan, þéttann líkama, með greinilega formað, fágað höfuð. Í heild hundur í góðum hlutföllum af æskilegri stærð. Hann stendur vel í herðarnar á beinum framfótum með aðeins aflíðandi baklínu í átt að sterkum hóflega sveigðum vöðvamiklum afturhluta, Hann er hundur sem nær töluverðum hraða og býr yfir miklu þreki. Fyrst og fremst hundur sem skal vera frjálslegur, glaðlyndur, heilbrigður, í góðum hlutföllum alls staðar og sýna ákaft vinnueðli. Hundur sem er í góðum hlutföllum alls staðar er betri fulltrúi en hundur sem er mjög góður að sumu leiti en gallaður að öðru.
MIKILVÆG HLUTFÖLL: Lengd frá brjóstbeini að enda afturlæris er örlítið lengri en hæð frá efsta punkti herðakambs niður á gólf. Hundurinn þarf að hafa næga bollengd til að geta tekið bein og frjáls skref. Hundurinn á ekki að sýnast langur og lágur.
HEGÐUN / SKAPGERÐ: Með gott jafnaðargeð og engin merki um feimni.
HÖFUÐ : Til að ná vel samræmdu höfði hæfirheildarsvip hundsins, þarf það að gefa mynd af greindum, vakandi, mjúkum og aðlaðandi svip.
HÖFUÐ SVÆÐI : Höfuðkúpa : Hún á að vera ávöl en ekki ýkt og á ekki að sýnast flöt. Augabrýrnar eiga að vera greinilega aðskildar. Beinabygging undir augum skal vera vel formuð.
Ennisbrún (stopp): Skal vera hátt og greinilegt.
ANDLITSSVÆÐI : Nef : Skal vera nægilega stórt til að samsvara við trýni og andlit hundsins, með vel þroskuðum nösum sem hæfa veiðihundi. Nefið er svart á litinn á svörtum, svörtum og tan og svörtum og hvítumhundum. Á hundum af öðrum lit má nefið vera brúnt, lifrarbrúnt eða svart, þeim mun dekkra því betra. Litur á nefi skal vera sá sami og á augnumgjörð. Trýni : Breitt og djúpt.Til að vera í réttum hlutföllum þarf lengd frá ennisbrún að nefi að vera helmingur af lengd frá ennisbrún að hnakkabeini.
Varir: Efri varir þurfa að vera fylltar og nægilega djúpar til að hylja neðri kjálka.
Kjálkar/tennur: Kjálkar kantaðir og jafnir. Tennur sterkar og heilbrigðar, ekki of litlar og skulu mætast í skærabiti.
Kinnar: Ekki framstæðar.
Augu : Augun eiga að vera ávöl, fyllt og vísa beint fram. Lögun augnaumgjarðar skal vera örlítið möndlulaga í útliti. Augun eiga ekki að vera starandi, veikluleg eða útstæð. Hvarmalitur er dökkbrúnn og þeim mun dekkri því betra.
Eyru : Dropalaga, löng, úr fíngerðu eyrnaleðri, vel loðin og skulu ekki staðsett hærra en í línu út frá neðri hluta augnumgjarðar.
HÁLS : Hálsinn er nógu langur til að nefið geti snert jörð auðveldlega, vöðvafylltur og á ekki að vera hangandi. Hann rís sterklega frá herðum og er örlítið sveigður þar sem hann mjókkar og tengist við höfuðið.
BOLUR : Yfirlína : Örlítið aflíðandi í átt að vöðvamiklum afturhluta.
Bak : Sterkt og aflíðandi frá herðum að skottrót.
Brjóstkassi : Djúpur, lægsti punktur ekki hærri en olnbogar, að framan nægilega víður til að hýsa hjarta og lungu, en ekki svo víður að hann trufli beinar hreyfingar framfóta. Rifbein eru djúp og vel hvelfd.
SKOTT : Skottið skal vera í sömu línu og yfirlína baksins eða örlítið hærra, aldrei beint upp eins og á terrier og aldrei svo lágt að það sýni feimni. Þegar hundurinn er á hreyfingu skal skottið dilla glaðlega. (Ath. Ísl. Dýraverndunarlögbanna skottstýfingar)
ÚTLIMIR :
FRAMHLUTI : Framfætur eru samsíða, beinir, bein sterkbyggð, vöðvafylltir og staðsettir þétt við skrokk og vel undir herðablöðum.
Herðar : Vel afturliggjandi og mynda vinkil við efri legg um 90°sem gera hundinum kleyft að hreyfa framfæturna á auðveldann hátt með góðu framstigi. Herðarnar eru afdráttarlausar og aflíðandi án útskots og staðsettar þannig að efsti punktur við herðakamb er í vinkil sem gefur rými fyrir víð rifbein.
Olnbogar: Þegar horft er frá hlið eru olnbogarnir beint undir hæsta punkt á herðablöðum miðað við lóðrétta stöðu framfóta.
Loppur: Stuttar og sterkar.Spora á framfótum má fjarlægja. (Ath. Samkv. Ísl. Dýraverndunarlögum er bannað að fjarlægja spora)
AFTURHLUTI : Séð aftan frá eru fætur hundsins samsíða bæði á hreyfingu og eins er hann stendur kyrr. Bein eru sterkbyggð og fætur vöðvamiklir.
Mjaðmir: Víðar vel ávalar og vöðvamiklar.
Læri : Kraftmikil og skýrt afmörkuð.
Hné : Eðlilega vinkluð sterk, alls ekki losaraleg hvorki á hreyfingu né í kyrrstöðu.
Hæklar : Sterkir og fara beint niður. Spora á afturfótum má fjarlægja. (Ath. Samkv. Ísl. Dýraverndunarlögum er bannað að fjarlægja spora)
Fætur: Fætur eru stórir, ávalir og þéttir með stinna þófa. Hvorki inn eða útskeifir. GANGUR/HREYFINGAR: Ameríski Cockerinn er þrátt fyrir að vera minnsti veiðihundurinn, með dæmigerðar hreyfingar veiðihunds. Forsenda góðra hreyfinga er jafnvægi milli hlutfalla fram og afturhluta. Hann hreyfir sig með kraftmiklum afturhluta fram á við með samandregnar herðar og framfætur þannig að hann nær löngu framstigi án þvingunar til mótvægis við drifkraftinn frá afturfótum. Í heild er gangur hans samstilltur, mjúkur og áreynslulaus. Hundurinn verður að ná góðri yfirferð með hreyfingum sýnum.Ærslagang skal ekki rugla saman við góðan gang.
FELDUR :
Hárafar : Á höfði, stutt og fíngert. Á skrokk, miðlungs langt með nógan undirfeld sem veitir vörn. Eyrun, bringan, kviður og fætur eru vel loðin, þó ekki svo að það hylji sannar línur og hreyfingar Ameríska Cockersins, eða hindri útlit eða virkni hans sem veiðihunds með hófsama feldsídd. Áferðin skiptir mestu máli.Feldurinn er silkikenndur, sléttur eða örlítið liðaður með áferð sem gerir umhirðu auðvelda. Óhóflega mikill feldur,krullaður eða með ullarkennda áferð skal lækka hundinn mikið í dómi. Rakstur með rafmagnsrakvél á baki er ekki æskilegur. Snyrting til að draga fram sannar línur hundsins skal gerð á eins náttúrulegan hátt og hægt er.
LITIR OG AUÐKENNI: Svartur : Einlitir svartir þar með talið svartir með tan lit. Svartir skulu vera gljásvartir, blæbrigði af brúnum eða lifrarbrúnum lit í feld er óæskilegt. Lítið magn af hvítum lit á bringu og/eða hálsi er leyfilegt. Hvítt annars staðar er óleyfilegt og skal hundur útilokast fyrir það.
Allir einlitir aðrir en svartir (ASCOB): Allir einlitir aðrir en svartir, allt frá ljós kremuðum til dökkrauðra, þar með talið brúnir með tan lit. Liturinn skal vera heildstæður, þó má síðari hluti feldsins vera ljósari. Lítið magn af hvítum lit á bringu og/eða hálsi er leyfilegt. Hvítt annars staðar er óleyfilegt og skal hundur lækkaður í dóm fyrir það.
Tví- og þrílitir (Parti-Color): Tveir eða fleiri vel aðgreindir litir. Einn af þeim skal vera hvítur: svartur og hvítur, rauður og hvítur, (rauður getur verið frá ljós kremuðum til dökkrauðra), brúnn og hvítur og yrjóttir (roan) einnig allar þessar blöndur ásamt tan litnum. Tan liturinn skal vera eins staðsettur og á einlitum hundum. Ef einn litur þekur 90% af heildaryfirborði felds eða meira skal hundur útilokast fyrir það.
Tan liturinn: Tan liturinn má vera frá ljós kremuðum til dökkrauðs og er bundinn við 10% eða minna af heildaryfirborði felds. Tan litur með svörtum og öllum einlitum öðrum en svörtum skal vera staðsettur eins og hér segir:
1) Hreinir tan blettir fyrir ofan bæði augu.
2) Á hliðum á trýni og á kinnum.
3) Á innanverðum eyrum.
4) Á öllum fótum og/eða leggjum.
5) Undir skotti.
6) Á bringu.ekki nauðsynlegt : hvort sem þeir eru eða vantar skal ekki refsa fyrir þá.
Tan litir sem eru ekki auðséðir eða aðeins vottar fyrir skal draga niður fyrir í dómi. Tan á trýni sem teygjir sig upp á við yfir trýni og mætist skal einnig draga niður fyrir í dómi. Ef tan liti vantar á þá staði sem hafa verið taldir upp hér að ofan á svörtum og öllum einlitum öðrum en svörtum skal hundur útilokast fyrir það.
STÆRÐ: Kjörhæð við herðakamb fyrir fullorðinn hund er 38 cm.og fyrir fullorðna tík 35,5 cm. Skekkjumörk eru 1 ½ cm yfir eða undir kjörhæð. Hund sem er hærri en 39,5 cm. eðatík sem er hærri en 37 cm.skal útiloka frá dómi. Fullorðinn hund sem er minni en 36,5 cm. og fullorðna tík sem er minni en 34 cm.skal draga niður í dómi. Hæð er mæld í beinni línu frá gólfi upp á herðakamb, með hundinn standandi eðlilega með framfætur í línu við mælingu
GALLAR: Öll frávik frá framangreindum atriðum skulu vera álitinn galli og alvarleiki þeirra skal vera ákvarðaður í réttu hlutfalli við frávikið.
GALLAR SEM VALDA ÚTILOKUN FRÁ DÓMI : Litir og litablöndur: Fyrrgreindir litir eru einu samþykktu litirnir eða blanda af litum. Alla aðra liti eða litablöndur skal vísa úr keppni.
·Svartir: Hvít merki annars staðar en á bringu eða háls.
·Allir einlitir aðrir en svartir: Hvít merki annars staðar en á brjósti eða háls.
·Flekkóttir (Parti-Colour): Ráðandi litur þekur 90 % eða meira af hundi.
·Tan litir :
(1) Tan litir þekja meira en 10%yfirborðs.
(2) Tan liti vantar áeða eru á röngum stöðum á annars tan litum hundum í svörtum og öllum einlitum öðrum en svörtum hundum.
Stærð : Hundur sem er stærri en 39,5 cm.
Tík sem er stærri en 37 cm.
ATH: Karldýr skulu hafa tvö eðlilega þroskuð eistu að fullu gengin niður í punginn.
Fyrrgreindir litir eru einu samþykktu litirnir eða blanda af litum. Öllum öðrum litum eða litablöndum skal vísa úr keppni.
( Ath. Ísl. Dýraverndunarlög banna skottstýfingar og að fjarlægja spora samkvæmt reglugerð útgefinni 22 júní 2001.)
þýðing unnin upp úr þýðingu Báru Einarsdóttur og Mörtu Gylfadóttur af Tryggva Erlingssyni